Ágætt sumarfrí er að baki, og alvara lífsins tekin við á ný. Við Kolla gerðumst útrásarvíkingar á Benidorm í átta daga, og heila viku á Akureyri strax á eftir. Þetta leyfðum við okkur þvert gegn allri skynsemi og áhyggjum yfir magurri buddu. Það var þó vel þess virði.

Mútta verður hjá okkur yfir helgina. Lífinu verður tekið með stökustu ró, og e. t. v. örlítilli grillveislu með kvöldinu. Þannig er vel heppnuð Verslunarmannahelgi í mínum huga.

Nú á ég mér nýtt áhugamál; bjórbruggun. Frumraunina þreytti ég í gærkvöld, og var að fram á nótt. Nú þegar ég lít á kútinn, fyllist ég hamingju og stolti yfir eljusemi gerlanna – þeir eru svo duglegir!