1. apríl 2010
Skýring fundin – eða góð afsökun
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | Engar athugasemdir
Nú tel ég mig vita hvers vegna mér gengur svo brösuglega við skriftir. Lífið er orðið svo einstaklega fábrotið, að helsta tilbreytingin er í verkefnum á vinnustaðnum. Það er ekki vitund gaman að skrifa um vinnuna.
Annars er ég virkilega ríkur um þessar mundir. Í bókahillunni á ég fjórar ólesnar bækur, hvorki meira né minna. Það væri ekki samkvæmt sannleikanum að segja þær um andans efni, en afbragðs afþreyingu má finna í þeim engu að síður.
The Cleric Quintett eftir R. A. Salvatore, Equal Rites og Mort (Discworld bókaflokkurinn) eftir Terry Pratchett, sem og þriðja og (vonandi) síðasta bókin um Eragon, þ. e. Brisingr, eftir Christopher Paolini.
Þessi færsla hefur verið lesin 15 sinnum