Yfirvinnan í lágmarki, aðeins örfáir tugir ógreiddra stunda það sem af er þessa mánaðar. Ógn erum við Kolla og Nemó fegin. Nemó er nefnilega með eindæmum mikill „pabbastrákur„.

Páskarnir voru sérstakir í ár. Við skötuhjúin hreyfðum hvorki legg né lið, enda Kolla vart í ástandi til þess. Svæsin hálsbólga með tilheyrandi hósta og ólátum hélt okkur á fótum meira eða minna um páskana. Ég berst enn gegn óværunni, og svo virðist sem ég muni sleppa með minniháttar lasleika.

Styttist óðum í sumarfrí. Við hjúin ætlum að vera í fríi allan júní mánuð. Ég ætla að slökkva á vinnusímanum á meðan – það fækkar vinnutengdum símtölum um rúmlega helming. Óráðið er hvað við munum gera af okkur. Ef olíuguðirnir lofa, munum við vonandi skoða ókunnar slóðir á landinu, eða a. m. k. fara eina ferð til Akureyrar.