2011


Öll eigum við einhverjar vandamál að etja. Þau geta verið af margvíslegum toga. Flest okkar eiga við fjárhagsleg vandamál að glíma. Af þeim hljótast gjarnan tilfinningaleg vandamál. Svo af kolli og kolli. Yfir „blá„ jólin  reynum við að leggja vandamálin til hliðar, og gerum það besta úr hlutunum. Lesa meira af „Jólapistill 2011″

Í gær tók ég ákvörðun, og framkvæmdin átti sér stað í dag. Hef sagt upp starfi mínu hjá Þjóðskrá Íslands, og ráðið mig til Tölvu og rafeindaþjónustu Suðurlands á Selfossi. Ástæðurnar mun ég ekki rekja hér, a. m. k. ekki aðrar en þær að TRS býður upp á spennandi möguleika og áskoranir sem ekki eru lengur fyrir hendi hjá Þjóðskrá. Ég hlakka til að starfa þar með því ágæta fólki sem ég hitti í skoðunarferð minni í dag. Að sama skapi kvíði ég því að kveðja marga af þeim félögum sem ég hef eignast á síðustu þremur og hálfa ári hjá Þjóðskrá. En þökk sé Andritinu, meðal annars, verða ekki allir kvaddir fyrir fullt og allt.