Í gær tók ég ákvörðun, og framkvæmdin átti sér stað í dag. Hef sagt upp starfi mínu hjá Þjóðskrá Íslands, og ráðið mig til Tölvu og rafeindaþjónustu Suðurlands á Selfossi. Ástæðurnar mun ég ekki rekja hér, a. m. k. ekki aðrar en þær að TRS býður upp á spennandi möguleika og áskoranir sem ekki eru lengur fyrir hendi hjá Þjóðskrá. Ég hlakka til að starfa þar með því ágæta fólki sem ég hitti í skoðunarferð minni í dag. Að sama skapi kvíði ég því að kveðja marga af þeim félögum sem ég hef eignast á síðustu þremur og hálfa ári hjá Þjóðskrá. En þökk sé Andritinu, meðal annars, verða ekki allir kvaddir fyrir fullt og allt.
Þessi færsla hefur verið lesin 26 sinnum