Öll eigum við einhverjar vandamál að etja. Þau geta verið af margvíslegum toga. Flest okkar eiga við fjárhagsleg vandamál að glíma. Af þeim hljótast gjarnan tilfinningaleg vandamál. Svo af kolli og kolli. Yfir „blá„ jólin  reynum við að leggja vandamálin til hliðar, og gerum það besta úr hlutunum.Öll erum við auðug. Sum að veraldlegum munum, önnur að tilfinningalegum. Sumir eru jafnvel auðugir að hvoru tveggja.

Ég er ekki kirkjurækinn, en trúi þó því, að öll eigum við að koma vel fram við náungann og láta gott af okkur leiða. Heiðarleiki, kærleikur, hógværð, og gleði. Slík eru manngildi, hver sem trúin er.

Mín trú er sú, að enn leynist kærleikur, fegurð og friður, á meðal manna. Þessi gildi ættu að vera í hávegum höfð allt árið um kring. Allar stundir, ár og tíð. Við þurfum ekki tyllidaga til að láta gott af okkur leiða.

Það er hinn sanni auður, og sá er ekki falur.

Eigið góðar stundir og ánægjuríka hátíð. Hlotnist ykkur hamingja á nýju ári. Með þökk fyrir liðna tíma.