Um mig

Ég fæddist á Akureyri þann 12. maí 1983, kl. 10:02 fyrir hádegi. 10 merkur vó snáðinn og 49 sentimetra stóð hann. Eftir tiltölulega skamma dvöl í Grímsey, þar sem faðir minn starfaði um hríð, tóku uppvaxtarárin við í Hafnarstrætinu á Akureyri. Ýmsum sögum fer af þessum árum, en öllum ber saman um að ég hafi verið rólegur og látið lítið fyrir mér fara. Grunnskólanám hóf ég við Barnaskóla Akureyrar, síðar Brekkuskóla. Í millitíðinni hafði ég viðkomu í Bröttuhlíðarskóla, þá Gagnfræðaskóla Akureyrar, en lauk grunnskólanámi frá Grenivíkurskóla. Þar með lýkur minni skólagöngu um sinn, en ég hef myndað mér býsna ákveðnar skoðanir um nytjar slíkrar menntunar í gegnum árin.

Ég hef verið afar tónelskur frá því er ég man eftir mér fyrst, og fyrsta hljómborðið eignaðist ég aðeins fjögurra ára gamall. Um fimm ára aldurinn nam ég harmonikuleik hjá föðurforeldrum mínum. Skömmu síðar færði Örn Viðar Erlendsson, gítarkennari við Tónlistarskóla Akureyrar, mér stærra og fullkomnara hljómborð. Það á ég raunar enn þann dag í dag, en illu heilli hef ég ekki haldið þeirri fimi við í undanfarin ár. Um tólf ára gamall eignaðist ég fallega fjögurra kóra harmoniku, en það á ég enn til að grípa í þegar færi gefst. Í kjölfar þess gekk ég til liðs við Félag Harmonikuunnenda við Eyjafjörð, og kynntist þar mörgum góðum mönnum sem ávallt hvöttu mig til að mæta á æfingar stórhljómsveitarinnar, þó svo ég spilaði aðeins fyrir þá í hléum á milli æfinga. Um fermingaraldurinn áskotnaðist mér fyrsti gítarinn, klassískur af gerðinni Yamaha CG-130A. Ég fiktaði vikum saman við tækið án þess að ná nokkrum af þeim markmiðum er ég setti mér, en skyndilega var engu líkara en hlið hefði opnast fyrir mér, og þjálfunin varð mun auðveldari. Gítar- og píanóleik nam ég að mestu af sjálfsdáðum, og tel mig alls ekki síðri fyrir vikið.

Um þetta leyti fór ég að veita tækni og tölvum meiri eftirtekt. Ég hef eytt ófáum stundum með Hartmanni Eymundssyni afa mínum, við teikningar og framleiðslu á ýmsum raftækjum á borð við klukkur, hljóðmagnara og hljóðbrellutækja. Helsta fermingargjöfin var svo 133 MHz Pentium turntölva, en hana brúkaði ég nánast óbreytta allt fram að 17 ára aldri. Á þessum árum eyddi ég mun meiri tíma í að kynna mér innviði tölva og forritun, heldur en leikjaspilun og þess háttar gaman. Smalamál (eða Assembly) var með þeim fyrstu forritunarmálum er ég kynnti mér, og síðar stúderaði ég Pascal. Um svipað leyti byrjaði ég að spila skotleikinn Quake II, og ekki leið á löngu þar til ég komst í kynni við A-Team og tók svolítinn þátt í þróun Action Quake II. Síðar var ég fenginn til að sjá um rekstur skilaboðaskjóðu þeirra, sem var af gerðinni Ultimate Bulletin Board. Þá kynntist ég fyrst Perl mállýskunni, og í framhaldi af því komst ég í nokkuð náið samstarf með Infopop, og tók einhvern þátt í þróun þess er nú heitir UBB.classic. Mitt í þessu öllu dundaði ég mér við forritun í Delphi og annars er nefnist Visual DialogScript. Ég þróaði fáeinar viðbætur við VDS sem ég ýmist bauð án eða gegn endurgjaldi, og þar með hófust mín viðskipti um Internetið utanlands. Síðar nam ég forritunarmálið C, og grunninn að C++. Á sama tíma var ég enn fremur farinn að grúska í PHP og MySQL, kerfisstjórn Windows 2000, vefhýsingu, umsjón nafna-, póst- og skráaþjóna, og svo mætti lengi telja. Einhvers staðar á þessu tímabili ákvað ég að kynna mér Linux, og varð Redhat fyrir valinu. Það olli mér hins vegar aðeins vonbrigðum, og því snéri ég mér alfarið að Slackware. Ég þróaði minn eigin Quake II biðlara, Quake II: ICE, en hann naut nokkurra vinsælda, einkum þó í Ameríku. Helstu breytingar sem ég gerði voru lagfæringar á öryggisgöllum og hagræðingar, og kafaði jafnvel svo djúpt að sami kjarninn bauð upp á hámarksafköst fyriur mismunandi örgjörva með tækni á borð við MMX, 3DNow! og SSE/SSE2.
Um tíma starfaði ég við viðgerðir á húsþökum og múrverk. Þar lærði ég meðal annars að bræða niður plastdúka og hræra steinsteypu. Minnisstæðast er mér þó alltaf þegar vinnuveitandi minn veittist að okkur vegna lélegra vinnubragða, og með sýnikennslunni heppnaðist honum að kveikja í þaki íbúðarhússins að Einarsstöðum í Glæsibæjarhreppi. Þá gat ég vart varist hlátri, þrátt fyrir alvarleika málsins.

Lengst af hef ég starfað sem verktaki, einkum við forritun og vefhönnun. Meðal annars tók ég að mér forritun vefs Miðlarans ehf. Þá lærði ég VBScript, en hef blessunarlega aldrei þurft að notast við þá kunnáttu síðar. Vegna skorts á formlegri menntun hefur mér reynst erfitt að komast í störf við mitt hæfi innan stórfyrirtækja. Það var raunar ekki fyrr en í kjölfar starfskynningar á vegum Menntasmiðjunnar á Akureyri er ég komst að hjá Stefnu ehf, í fyrstu sem verktaki, síðar góður og gegn starfsmaður. Helstu störf mín þar voru forritun í PHP og MySQL, prófarkalestur, og almenn umsjón Linux netþjóna. Þegar mér var sagt upp störfum hjá Stefnu vegna samdráttar, bauð Lára Stefánsdóttir mér að aðstoða sig við ýmislegt vegna opnunar Tölvuskólans Þekkingu hér á Akureyri. Að undanförnu hef ég svo kennt grunnskólanemum vefforritun sem valfag hjá TSK, og komist að þeirri niðurstöðu að mér líkar afar vel kennarastarfið. Það kitlar óneitanlega hégómagirndina einnig að geta miðlað af reynslu sinni (og óformlegri menntun), einkum í ljósi þess hvernig metorðagirndin virðist ráða flestum fyrirtækjum landsins í dag. ;)

Sumarið 2007 var ég ráðinn sem kerfisstjóri Þjóðskrár, skömmu eftir skiptingu deildanna. Áður hét þetta Tölvudeild dómsmálaráðuneytisins, en hefur nú verið skipt í tölvudeildir Þjóðskrár og Ríkislögreglustjóra. Í kjölfarið fluttist ég að mestu til Reykjavíkur, en tíðar ferðir á milli Akureyrar og Reykjavíkur einkenndu þó tilveruna fram að áramótum 2008.

Dagleg störf eru meðal annars símsvörun og flestöll tölvu- og tækniþjónusta við sýslumannsembættin, sem og héraðsdómstóla og Persónuvernd. Þá má einnig nefna umsjón net- og IP símkerfa sem embættin öll tengjast, en það byggir nær eingöngu á Cisco lausnum. SQL gagnagrunnar, Linux jafnt sem Windows netþjónar, og svolítil forritun þegar lánið leikur við mig.

Sigurður Axel

Þessi færsla hefur verið lesin 2,450 sinnum

Engar athugasemdir við “Um mig”

  1.  

Athugasemdir eru ekki leyfðar við þessa færslu.