- Skáldskapur -


Hjartað úr hamingju
hótar að springa.
Elskar hún mig?

Heilsan er á hraðri leið,
til Helvítis.
Eflaust endar æviskeið,
með bronkítis.

Tvær limrur og ferskeytla láku úr smiðju minni í dag. Á árum áður hafði ég gaman af að hnoða saman allskyns vitleysu, en áhuginn dvínaði eftir sem á leið. Nú óttast ég hið versta, að óhóflegur leirburður muni vella um vefdagbókina í framtíðinni. Þessar eru ekki fyrir viðkvæma bragfræðifasista, því fleiri reglur voru brotnar við gerð þeirra en ég get talið á fingrum mínum. ;) Lesa meira af „Leirburður„

Eitt einasta syndar augnablik,
sá agnar-punkturinn smár,
oft lengist í æfilangt eymdar stryk,
sem iðrun oss vekur og tár.

Eitt augnablik helgað af himinsins náð
oss hefja til farsældar má,
svo gjörvöll vor framtíð er geislum stráð
og gæfan ei víkur oss frá.

Eins augnabliks sigur, sé ákvörðun rétt,
oss eilífðar hnossi fær gætt;
Eins augnabliks tjón, það er annað en létt,
vart eilífðin getur það bætt.

Steingrímur Thorsteinsson

„Hafðu þetta og hananú!„
hrópaði Grettir sterki
og steindrap tólf berserki.