- Tónlist -


Þrátt fyrir sólríka og hlýja daga hef ég gefið mér góðan tíma í að rifja upp kynni mín af tónlist Shadows. Annars hef ég varið drjúgum tíma í sólinni á svölunum með ágætum árangri. Svo er ég orðinn kvefaður í þriðja sinn á árinu. Til allrar lukku er það bara nefið og hálsinn, án annarra óþæginda á borð við hita og beinverki. Dugnaður hefur verið í algjöru lágmarki, naumast snert á nokkru sem gæti talist til vinnu.

Ekki alls fyrir löngu tók ég eftir galla í kerfinu sem veldur því að leitarorð fyrir færslur detta út eða týnast. Líklega tengist það síðustu uppfærslu WordPress. Ég nenni bara ekki að finna út úr því núna. Uppfærði kannanakerfið nýlega, nú með AJAX og öðru álíka móðins.

Ég varð hvorki var við talandi kýr né hamslausa seli í nótt. Líklega er það vegna þess að ég fór ekki út, hvorki til að velta mér upp úr dögginni né í öðrum erindagjörðum. Kannski á næsta ári.

Samsæriskenningar Eiríks eru hlægilegar. Lagið var leiðinlegt, og flutningurinn lítið betri. Mér þykir það ekki einu sinni leitt þó ég traðki á særðri hégómagirnd einhverra með þessum orðum. Evróvisjón er lítið annað en leikbúningasýning. Ég leyfi mér að vísa í færslu nafna míns, í stað þess að endurtaka hana hér.

Á meðan ég man, hvers vegna sitja nöfnin Eiríkur Haukdal svona fast í mér? Mér finnst að ég hljóti að vera að rugla saman nöfnum.

Það er tiltölulega stutt síðan Bylgja benti mér á þessa afburða tónlistarkonu frá Írlandi. Lagið sem kom mér af stað ber titilinn Caribbean Blue. Síðar gerði ég þá skemmtilegu uppgötvun að eitthvað af tónlist hennar rataði í kvikmyndir Peter Jackson um Hringadróttinssögu, en þær eru í miklu uppáhaldi. Ég átti svo langt og áhugavert samtal á kaffihúsi nýverið við írskan félaga minn. Hann lofaði konuna og var eilítið hneykslaður að ég hefði ekki kynnst tónlist hennar fyrr.
Nú er hún í nær látlausri spilun hjá mér. Meðal stakra laga sem mér eru einkar hugleikin má nefna áðurnefnt Caribbean Blue, Book Of Days, Anywhere Is, Only If, Lothlórien og Marble Halls. Svo skemmtilega vill til að fyrstu fjögur lögin koma einmitt fyrir í sömu röð á geisladiskinum Paint The Sky With Stars.

Í gær rakst ég á áhugaverða hljómsveit nefnda Kamelot. Tónlistarstefnan er „Melodic Power Metal„, þó síðustu tvær skífur þeirra mætti ef til vill flokka sem „Epic Power Metal„. Nýjustu diskarnir tveir eru byggðir á útfærslu Johann von Goethe um Faust. Fyrir áhugasama mæli ég eindregið með lögunum March of Mephisto og The Haunting af diskinum The Black Halo (2005). Þónokkuð af tónlist þeirra er fremur keimlík DragonForce og Nightwish.

Að lokum, þá vildi innbyggði orðarýnirinn í Firefox ólmur skipta orðinu „Mephisto„ út fyrir „Sparistofa„.

Ég gerðist nýlega áskrifandi að Guitar World tímaritinu, sem kemur líklega ekki sérlega á óvart, nema þá hvað seint þetta gerist á „ferlinum„. Fyrsta tímaritið sem ég fékk í hendur innihélt m. a. viðtal við Joe Satriani (eitt af ýmsum goðum gítarleikara), en það ýtti umtalsvert undir áhuga minn um að læra eitthvað af tónlistinni hans – þó ekki nema „hit„ lögin. ;) Lesa meira af „Tónlist í vinnslu„