13. maí 2010
Eða reyni það, í það minnsta. Í dag fjarlægði ég t. d. þrjú rússaljósastæði og einn kastara, og setti upp ódýra en bráðsnotra kúpla í staðinn. Nú eru ný ljós í þremur herbergjum. Þar á eftir reif ég upp lista, fjarlægði gamalt sjónvarpsloftnet sem dregið hafði verið á milli herbergjanna, og dró Cat5 kapal á milli í staðinn. Gekk ekki þrautalaust fyrir sig, og kostaði mig 10 stykki RJ45 tengla. Crimp töngin hans Gunnars stóð sig ekki sem skyldi (fjöðrin hans er þó góð!), og eftir fyrstu lögn, afrekaði ég að skrúfa gólflistann í gegnum kapalinn. Reynslunni ríkari, og svolítið sveittari, reif ég allt upp og lagði nýjan kapal, setti tenglana á í fyrstu atrennu, og skrúfaði og negldi listana niður á ný. Gekk vonum framar.
Afmælisdagurinn var öllu rólegri. Nema í vinnunni. Þar erum við fjögur sem eigum afmæli sama dag. Því var ákveðið að við héldum vöffluveislu fyrir stofnunina. Þrjú okkar stóðu sveitt við sitthvert vöfflujárnið og bakaði ofan í mannskapinn. Hlutum söng, klapp á bakið, faðmlög og kossa að launum. Að vinnu lokinni tók við smá búðarráp, með viðkomu hjá Vilhjálmi frænda, og að endingu sófakvöld. Vegna veikinda fór ég þó ósköp snemma að sofa, líklega fyrir 10 um kvöldið.
Nú eru aðeins 11 dagar eftir þar til sumarfríið hefst. Ég hlakka til.
Þessi færsla hefur verið lesin 223 sinnum