- Tölvur & tækni -


Þann 26. ágúst síðastliðinn, birtist grein í Morgunblaðinu undir fyrirsögninni Tæknin drepur framhjáhald. Þar er m. a. því haldið fram að aldrei hafi verið eins auðvelt fyrir fólk að stofna til náinna kynna við aðra en makann, þá einkum í gegnum vefi á borð við MySpace, Facebook, Tagged og fleiri. Eins væri auðveldara að rekja slík svik en áður.

Ég held þó að lítið hafi breyst í þeim efnum, þrátt fyrir tilkomu þessarra vefa. Í dag er aðeins um aukið úrval að ræða; fleiri hafa aðgang að netinu, MSN er auðveldara í notkun en IRC, og þar fram eftir götunum. Ég er enginn sérfræðingur í að rekja sögu slíkrar notkunar, umfram það sem sjálfgefið er. Vafrakökur segja til dæmis ekki margt, og ómögulegt er að rekja spjallsögu notenda á MSN nema þeir kjósi að vista hana sjálfir. Þar fyrir utan er það ekki á hvers manns færi, að rekja lokaða spjallþræði eða önnur samskipti á netinu.

Því álít ég að tilkoma nýrrar tækni skipti ekki sköpum í þessu samhengi. Ég vildi þó gjarnan heyra álit sem flestra sem bentu til hins gagnstæða.

Ég vissi að það væri aðeins tímaspursmál… Python found in toilet.

Tölvunotendur með einhverja þekkingu á forritunarmálum skilja mig vonandi. ;)

Þá er ég búinn að setja upp nýjan netþjón, og flytja gögnin af þeim af þeim gamla yfir – vefir, gagnagrunnar, pósthólf, nafnaþjónn, CVS/SVN, og hvaðeina. Plássleysi ætti því ekki að valda frekari vandræðum um þónokkurt skeið. Nú, svo er sá nýji umtalsvert sprækari.

Þeir sem verða varir við vandamál í kjölfar flutningsins mega gjarnan láta mig vita.

Tölvutek er lítil og settleg tölvuvöruverslun. Starfsmennirnir þar eru ekki bara sölumenn. Þeir keppast ekki um að selja sem mest, heldur veita afbragðsgóða þjónustu. Það er í sjálfu sér nokkuð merkilegt, því flestar vörur sem ég kaupi af þeim, eru umtalsvert ódýrari en hjá öðrum sambærilegum verslunum. Ég sé þetta sífellt betur eftir því sem ég leita oftar til þeirra. Þjónustan verður persónulegri og nákvæmari með hverju skipti, því smátt og smátt læra þeir hvað viðskiptavinurinn vill.

Á þriðjudagsmorgun bað ég þá um tilboð í tölvu, íhluti sem ég var að mestu búinn að velja sjálfur. Þessi tölva á að leysa Vanaheim af, Linux netþjóninn sem hýsir meðal annars þessa vefdagbók. Sá er orðinn 10 ára gamall og farinn að kalka örlítið, en þó er merkilegt hvað hann stendur sig vel. Þetta útskýrði ég fyrir starfsmanni Tölvuteks, og bætti við að mér lægi svolítið á tölvunni þar sem ég færi norður á föstudaginn.

Ekki leið á löngu þar til ég fékk tilboðið, ítarlegt PDF skjal, í hendurnar, ásamt loforði um að gripurinn yrði til fyrir lokun verslunarinnar í dag, fimmtudaginn 12. júní. Í gær hringdu þeir í mig um hádegisbil, og buðust til að senda mér tölvuna, hún væri tilbúin. Ég kaus þó að sækja hana, enda stutt frá Skógarhlíð í Borgartún. Ég greiddi fyrir tölvuna, sem var svo borin út í bíl fyrir mig – þó ég veigraði mér ögn við og sagðist vel ráða við svo lítinn kassa án aðstoðar.

Í Skógarhlíð reif ég svo gripinn upp úr kassanum, setti í samband og ræsti. Allt var eins og það átti að vera – nema vinnsluminnið. Í tilboðinu voru 4 GB, í tölvunni aðeins 2 GB. Ég hringdi í strákana sem vildu þegar fá hana til baka til athugunar. Á meðan þeir sinntu tölvunni, þáði ég veitingar og skoðaði í hillurnar. Skömmu síðar fæ ég tölvuna aftur, með þeim skýringum að pakkinn utan um vinnsluminnið hafi verið vitlaust merktur. Í staðinn settu þeir vandaðri (og jafnframt dýrari) gerð af vinnsluminni í tölvuna, þó 4 GB í þetta sinn, einskonar sárabætur fyrir mistökin. Að lokum var mér réttur poki af sælgæti, og kvaddur með virktum.

Það sem ber af er hversu fljótt þeir afgreiða málin, allt frá tilboði til afhendingar. Viðurkenna mistök, leiðrétta, og bæta viðskiptavininum það upp eftir bestu getu. Allan tímann með bros á vör.

Þetta er alls ekkert einsdæmi í mínum kynnum af starfsfólki Tölvuteks. Þau vita nefnilega að ánægður viðskiptavinur er mun líklegri til að koma aftur. Það vita ekki allir, eða stendur svo á sama að þeir veita ekki eins góða þjónustu og þeir gætu.

Það er ekki ýkja langt síðan umræður áttu sér stað um notkun farsíma til að fylgjast með ferðum ungviðisins hér á Fróni, en með GPS staðsetningarbúnaði er það tiltölulega einfalt. Ég hef raunar ekkert heyrt af því um tíma, en var svo bent á tilbúna vefþjónustu sem gerir þetta fljótt og örugglega.

Á vef Track a Partner er nóg að slá inn farsímanúmer (landsnúmer á undan, t. d. 354xxxxxxx fyrir Ísland) og smella á leitarhnappinn. Þjónustan hefur umsvifalaust samband við gervihnetti, og eftir skamma stund byrjar hún að plotta staðsetningu viðkomandi símtækis á korti með ótrúlegri nákvæmni.

Það besta er að þetta kostar ekki svo mikið sem krónu! :)