- Tölvur & tækni -


Það er ekki ýkja langt síðan umræður áttu sér stað um notkun farsíma til að fylgjast með ferðum ungviðisins hér á Fróni, en með GPS staðsetningarbúnaði er það tiltölulega einfalt. Ég hef raunar ekkert heyrt af því um tíma, en var svo bent á tilbúna vefþjónustu sem gerir þetta fljótt og örugglega.

Á vef Track a Partner er nóg að slá inn farsímanúmer (landsnúmer á undan, t. d. 354xxxxxxx fyrir Ísland) og smella á leitarhnappinn. Þjónustan hefur umsvifalaust samband við gervihnetti, og eftir skamma stund byrjar hún að plotta staðsetningu viðkomandi símtækis á korti með ótrúlegri nákvæmni.

Það besta er að þetta kostar ekki svo mikið sem krónu! :)

Mitt fyrsta verk eftir lendinguna á Akureyri í kvöld var að uppfæra vefdagbækurnar okkar Kollu. Það gekk fljótt og sársaukalaust fyrir sig – það sem áður tók mig a. m. k. hálftíma og umtalsverða handavinnu. Síðast bjó ég þannig um hnútana að mínar breytingar og viðbætur þörfnuðust engra breytinga á sjálfu kerfinu. Íslenska þýðingu fékk ég frá Binna, en ekki alls fyrir löngu lauk hann við sömu uppfærslu og þýðingu á kerfinu.

Held að ég sé nokkuð ánægður með nýju útgáfuna. Mun þó eflaust taka einhvern tíma að venjast breytingunum, einkum í kerfisstjórninni. Nú er allt orðið miklu fínna og fallegra. ;)

Að lokum, þá uppfærði ég kannanaviðbótina og lagaði smá galla sem kom í veg fyrir atkvæðagreiðslu. Gjörið svo vel og snæðið kjörseðlana eða nýtið þá að vild. :)

Kæru vinir og velunnendur!

Rétt í þessu lauk ég við breytingar, uppfærslu og flutning á vefdagbókinni. Nýja veffangið er www.disi.is (eða aðeins disi.is), en gamla slóðin, idle.blog.iceware.net virkar enn á meðan fólk aðlagast breytingunum.

Eins vil ég benda á nýju vefdagbókina hennar Kollu, en mér tókst að WordPress væða hana. Slóðin hennar er www.kolla.is.

Ég vona að þessum breytingum verði tekið vel. Bæði eru slóðirnar styttri og einfaldari að muna, og að sjálfsögðu mun þjóðlegri með þessum yndislegu .is endingum! ;)

Um tilkomu lénsins má lesa hér.

Þá er ISNIC búið að græða ágætlega á mér í dag, en rétt í þessu gekk ég frá leigu á lénunum kolla.is og disi.is. Framhaldið felst svo í því að þessi vefdagbók verður hýst á síðarnefnda léninu, og ég þá formlega punktur-is-væddur.

Einhverjar furða sig eflaust á vali mínu á lénsheiti, en „Disi„ er eitt af þessum gælunöfnum sem hafa loðað hvað lengst við mig. Upphaf þess má rekja aftur til vetursins 1986-87, eða þar um bil. Þá eignaðist ég fyrstu kisuna mína og nefndi hana Perlu. Talfærin voru þó ekki sérlega liðug, og fyrir vikið kallaði ég oftar „disi„, en átti að sjálfsögðu við „kisi„. Þetta festist svo við mig, en ekki köttinn!

Í dag klæðist ég ekki búningi fremur en fyrri öskudaga. En ef samstarfsmennirnir gera eitthvað á minn hlut, mun ég ekki hika við að þenja raddböndin í hefndarskyni.

Góðu gamni lauk á hrottafenginn hátt á laugardagskvöldið. Jan og ég sátum að leik um miðnætti þegar við urðum þess varir að aðalþjónninn hafði gefið upp öndina. Við tóku strangar og hraðar æfingar, með skrúfjárn og ryksugu að vopni. Reyndum að blása lífi í greyið, án árangurs. Veit enn ekki fyrir víst hvað hefur gefið sig, en hef grun um að það sé örgjörvinn eða móðurborðið. Önnur tölva var því sett í hlutverk hins látna, heilinn fluttur á milli, og beðið innilega til tækniguðanna.

Komst að því að sérbyggði Linux kjarninn úr gamla þjóninum var ekki allskostar sáttur við sitt nýja umhverfi, enda gríðarlegur munur á AMD og Intel! Dagurinn í dag hefur því farið í fleiri æfingar, og loks nú, 26 tímum síðar, virðist allt vera komið í þokkalegt horf. Hver segir svo að helgarfríin séu tekin út með sældinni? ;)