WordPress 2.5
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir WordPressPrenta | Senda færslu | Ein athugasemd
Mitt fyrsta verk eftir lendinguna á Akureyri í kvöld var að uppfæra vefdagbækurnar okkar Kollu. Það gekk fljótt og sársaukalaust fyrir sig – það sem áður tók mig a. m. k. hálftíma og umtalsverða handavinnu. Síðast bjó ég þannig um hnútana að mínar breytingar og viðbætur þörfnuðust engra breytinga á sjálfu kerfinu. Íslenska þýðingu fékk ég frá Binna, en ekki alls fyrir löngu lauk hann við sömu uppfærslu og þýðingu á kerfinu.
Held að ég sé nokkuð ánægður með nýju útgáfuna. Mun þó eflaust taka einhvern tíma að venjast breytingunum, einkum í kerfisstjórninni. Nú er allt orðið miklu fínna og fallegra.
Að lokum, þá uppfærði ég kannanaviðbótina og lagaði smá galla sem kom í veg fyrir atkvæðagreiðslu. Gjörið svo vel og snæðið kjörseðlana eða nýtið þá að vild.