Fólkið

Ég ákvað að verða við beiðni vinkonu minnar nokkurrar og reyna að koma á blað fáeinum athugasemdum um hina og þessa aðila sem ég hef einhvern veginn kynnst í gegnum tíðina. Þeir sem þekkja til mín að einhverju ráði vita að þeir þurfa alls ekki að móðgast þó eitthvað sé öðru fremur kjarnyrtara, og þeir sem ekki komast á listann í fyrstru atrennu að þetta sé aðeins spurning um tíma. Að lokum ætla ég að hafa þetta í stafrófsröð svo enginn þurfi að telja sig öðrum fremri. ;)

  • Anna Louise. Henni kynntist ég fyrir þó nokkrum árum hér á Akureyri, en hvar eða hvernig er löngu stolið úr mér. Hún gat látið eins og argasti götustrákur ef því var að skipta, en ég held að það sé þó farið að eldast af henni. Traust vinkona sem hefur reynst mér ákaflega vel í gegnum tíðina.
  • Birna Ósk. Sem fyrrum kærustu góðvinar míns tókst henni að ryðja sér til rúms í lífi mínu, og ætíð reynst mér afbragsðvinkona síðan þá. Hún er ein af þessum sem fær mann sífellt til að brosa, og hver stund með henni er ævintýri líkust.
  • Brent Welsh. Mér óir við að hugsa um hve langt er liðið frá því ég kynntist þessum Utah-búa. Oftast tilbúinn með gamanyrði á vörum, og ef ekki, þá reiðubúinn að hlusta á kvartanir um raunir hvunndagsins. Ég drap hann víst óhugnanlega oft áður en ég gekk til liðs við hann (í tölvuleiknum Action Quake II).
  • Emma Hunt. Ástrali í húð og hár, hreim og talsmáta. Öll síðkvöldin sem við höfum skemmt okkur yfir óförum Harry Potters eru æði mörg, en þau sem við höfum eytt í spjall um daginn og veginn, allt og ekki neitt, eru sennilega mun fleiri. Virkilega ljúf og lífsglöð stúlka sem tókst að troða sér ansi fljótt inn í vinahópinn.
  • Ingibjörg Bragadóttir. Dóttir föðursystur minnar og litla skautaprinsessan mín.
  • Jan F. Kindt. Tryggur vinur frá því á tímum Gagnfræðaskólans á Akureyri. Ánægjustundirnar sem ég hef átt með honum eru óteljandi og ómetanlegar. Einn af þessum rólyndu mönnum sem alltaf er hægt að treysta á.
  • Þeyr Guðmundsson. Annar kær vinur frá því í Gagganum. Ýmislegt af því sem við höfum gert í gegnum tíðina kæmist líklega seint í gegnum ritskoðun, en svo mikið er víst að traustari menn er erfitt að finna. Nú er hann hins vegar orðið slíkt vaxtarræktartröll að ég kynni hann fyrir fólki sem lífvörðinn minn (eins og ég gegni mikilvægri stöðu í þjóðfélaginu).
Þessi færsla hefur verið lesin 843 sinnum

Engar athugasemdir við “Fólkið”

  1.  

Athugasemdir eru ekki leyfðar við þessa færslu.